Já, já...

Dagurinn í dag er búinn að vera einstaklega misheppnaður að öllu leyti, en þó hef ég átt verri daga. Ég átti að mæta klukkan 10 í skólann í afró, þar sem núna standa yfir svokallaðir árdagar, en náði að missa af strætó. Það þýddi ekki að taka næsta og mæta 40 mín. of seint og  fá enga mætingu fyrir vikið, þannig ég ákvað bara að leggja mig aftur og mæta síðan í skólann klukkan 15 í salsa. Það næsta sem ég man er að ég ranka við mér flækt í iPod snúrunni minni með slef niður á höku og heimasímann var bókstaflega að öskra, eða að mér fannst (eigum nefnilega heimasíma sem hringir alltaf hærra og hærra við hverja hringingu), en þá var klukkan orðin 15:05 og ég nátturlega löngu búin að missa af strætó. Þannig ég fór á fætur og vældi e-ð smá yfir því hvað ég væri nú heimsk en eftir 5 mínútur var ég farin í tölvuna að hanga á myspace. Ég ákvað að stofna þetta nýja blogg til að gera e-ð úr deginum. Nema þegar ég byrjaði fór mig all mikið að verkja í móðurlífinu og voru engar verkjatöflur sjáanlegar. Þannig ég skrifaði eina snubbótta færslu og valdi þetta ógeðslega útlit hérna á síðuna sem er ekki skömminni skárri heldur en útlitinu á undan. Mér finnst mjög greinilegt að ég var með óráði þegar ég lét þetta á, þetta lítur út eins og e-ð notað dömubindi þessi örk hérna, og ég ætla ekki að fara neitt nánar út í höndina þarna í horninu. En ég nenni ekki að breyta því. Story of my life...

En nú eru allir að þrýsta á mig um að ég eigi að fá mér vinnu, ætli það sé ekki komin tími til andskotinn hafi það. Ef þið eruð með einhverjar hugmyndir látið mig vita.

Ég hef tekið eftir því að ég fyllist alltaf reglulega viðbjóð af fólki eða bara mannkyninu svona einu sinni í mánuði, og hatrið stendur stundum yfir í nokkra daga í senn. Ég hef reyndar uppgötvað það núna nýlega að ég þjáist af svolitlu sem kallast fyrirtíðarspenna, og þá verður mest allt fólk í augum mínum einstaklega leiðinlegt og óþolandi.

Já skemmtilegt....

 Nadia


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Tryggvadóttir

jei, nytt blogg til ad halda mer i sambandi vid umheiminn! Endilega haltu tessu domubindautliti og blodi drifinni hondinni, eg styd tad... Gerum uppsteit gegn tvi ad halda turblodi okkar leyndu gegn umheiminum! Annars hef eg longum aetlad ad senda ter email, kannski kem eg tvi i verk nuna. Eg sakna tin og biturra samraedna.

Helga Tryggvadóttir, 1.3.2007 kl. 02:34

2 identicon

Ég roðnaði án gríns áðan þegar ég las kommentið frá þér..  ( úúú ég er alveg að fíla þessi tilfinningatákn hér á þessari guðdómlegu handarsíðu)

Þú getur orðið góð sem blaðamaður, ég finn það á mér.. Tjékkaðu á því.

Mér finnst samt svona "sofu yfir dagar" afar nauðsynlegir ..

kv. ungfrú Þórunn Þórarinsdóttir

e.s : mér finnst þú skuggalega falleg ung dama..

e.s2 : ég held án gríns að þú sért búin að blocka mig á msn

Þórunn (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 10:48

3 identicon

Thu hefur studning minn i fyrirtidarspennu thinni jafnt sem ollum spennum thessa hverfula lifs.

Katla (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 13:01

4 identicon

Þakka ykkur fyrir stúlkur...

En Þórunn þú varst blockuð hjá mér á msn, veit ekki út afhverju, en ég afblockaði þig. Kannski ert þú búin að blocka mig?? 

Nadia (IP-tala skráð) 1.3.2007 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nadia
Nadia
Ég er furðuverk.

Bloggvinir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 224

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband