Kærasta eða ekki - kærasta...

Jæja, nú eru aðeins 3 dagar þangað til að ég og Magnús eigum 1 árs afmæli. Finnst mér það heldur ótrúlegt að einhver maður hafi getað afborið mig í nánast heilt ár.

Þegar ég var ekki kærasta, missti ég ófáa daga svefn yfir því að enginn vildi mig. Leitaði örvæntingafull á börum Reykjavíkur eftir hinum eina sanna, fann einhvern álitlegan og uppgötvaði oftast daginn eftir að þetta var þá bara enn annar drengstaulinn sem var á góðri leið með að verða útbrennd rokkstjarna.

Fjölskylduboð voru e-ð sem ég kveið fyrir, enn einu sinni þurfti ég að standa fyrir fram fjölskylduna og góla sömu rulluna "nei ég á ekki kærasta". Var maður litinn hornauga og hvíslaði fólk á milli sér að ég væri áreiðanlega lesbía víst að enginn maður væri kominn í spilið.

Ég öfundaði stelpur sem töluðu um kærastana sína, stundum varð ég bitur út í leiðinlegar stelpur því mér þótti það furðulegt að einhver vildi þær, en enginn vildi mig. Hvað var að mér?

Í ensku hef ég verið að læra um fordóma í Bandaríkjunum. Þegar fyrstu innflytjendurnir fluttu til Bandaríkjanna myndaðist mikil ringulreið og miklir fordómar. Fólk vissi ekki hvernig það átti að skilgreina sig, en það vissi þó að það gæti skilgreint sig út frá því hvað það var ekki. T.d. tengdi fólk sig við annað hvort að það væri white eða non-white. Þó svo að það kom í rauninni málinu ekkert við hvort að það var hvítt eða ekki, t.d. var litið á gyðinga sem non-white. White var normið, non-white var ekki normið.

Einhvern veginn minnir þetta allt saman mig á hvernig fólk (eða þá kannski bara ég) skilgreinir sig út frá því að vera kærasta/kærasti eða ekki - kærasta/kærasti. Normið er að eiga kærasta/kærustu, en að vera ekki - kærasta/kærasti í kannski langan tíma þykir afbrigðilegt. Það að eiga kærasta/kærustu gerir mann samþykkan í samfélaginu, ég er elskuð að af strák/stelpu þar af leiðandi hlýt ég að vera gild sem manneskja.

En já, hefði maður þá ekki haldið að Þórdís Nadia væri hamingjusamasta manneskjan á plánetunni víst að hún náði að halda sér í kærasta. Nei ekkert endilega. Öll sömu vandamálin hrjá mig og þó að hann Magnús minn elski mig ákaflega mikið, þá hverfa þessi vandamál ekkert. Stundum líður mér meira að segja að ég sé að svíkja lit, að núna er ég orðin bara kærasta, núna er ég bara skilgreind sem kærastan hans Magga.

Fjölskylduboðin hafa ekki skánað með neinu móti. Þegar ég var ekki - kærasta þá dagdreymdi mig um að ganga inn stolt í fjölskylduboð með kærasta í fararbroddi brosandi út af eyrum. Núna hins vegar þegar ég er kærasta eru helst allar samræður um Magnús en ekki mig, þá meina ég þegar hann er ekki í boðunum. Núna er ég spurð þvers og kruss um hann, en það hafa allir takmarkaðann áhuga á hvað ÉG er að gera, kannski er það einhver sem spyr kurteisislega í hálfum hljóðum hvernig gangi í skólunum, annars er það bara Maggi.

Já þetta voru bara svona smá hugleiðingar dagsins, og ég vil endilega fá komment um þessa færslu hvort þið séuð sammála mér eða ekki! Víííí

Nadia

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott færsla.. !

Ég kann virkilega vel við mig sem "kærasti" 

Kann virkilega vel við nýju síðuna, blái liturinn á þeirri gömlu var byrjaður að pirra mig svolítið..  

brynjar ýmir (IP-tala skráð) 15.3.2007 kl. 13:22

2 identicon

JEI! Gaman að heyra loks frá þér frú Þórdís kærasta! Já. Ég get verið sammála því að þegar maður er ekki kærasta ímyndar maður sér oft að allt verði svo undurfullkomið hafi maður aunhvurn karlpung til að styðja sig við. En ávallt er lífið hverfult, og vandamálin margslungin. En ástin er vissulega fögur þó hún sé normið.

Katla (IP-tala skráð) 16.3.2007 kl. 14:07

3 identicon

hei! kærastinn minn heitir líka Magnús! skondið!:D en skil þig svo vel.. alltaf þegar ég fer í heimsókn eitthvert, eins og til ömmu, þá er alltaf spurt um hann, hvernig honum gengur í skólanum og svona. Og til að toppa allt, þá tala amma og frænka mín alltaf um Magga SINN! "hvað segir maggi minn svo gott?" halló! hann er MINN! gaman að fólki líkar við hann og allt það, en það eru sko takmörk fyrir öllu!

Magga (IP-tala skráð) 16.3.2007 kl. 14:37

4 identicon

Ae, hvursu mikid turfum vid ekki ad sitja i litilli kjallaraholu og tala um tetta fram a nott... ju, eg er afar sammala ter en eg virdist ekki geta tjad mig um tetta i litilli kommentafaerslu. Eg verd to ad segja ad eg er, ef eitthvad er, ordin enn radvilltari hvort eg vil yfirhofud eignast kaerasta edur ei eftir ad eg kom hingad...

Helga (IP-tala skráð) 19.3.2007 kl. 06:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Nadia
Nadia
Ég er furðuverk.

Bloggvinir

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 224

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband